Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki

Togarinn Drangey SK2 í eigu FISK-Seafood kom til löndunar í heimahöfn sinni á Sauðárkróki í gær. Skipið tók góða veiðiferð og var aflinn um 123 tonn upp úr sjó. Meginhluti aflans samanstendur af þorski og ýsu en veiðisvæði skipisins voru meðal annars Digranesflaki og Kanturinn við Grímsey.

Drangey hefur veitt um 2240t af þorski það sem af er fiskveiðiári og á um 1919t af þorski eftir af aflaheimildum yfirstandandi árs. Þá eru eftir um 1500t af ýsu og tæp 900t af ufsa svo nóg er eftir til að sækja fyrir sjómenn Drangeyjar!

Heimild: https://fisk.is/drangey-sk2-landar-a-saudarkroki-127/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=drangey-sk2-landar-a-saudarkroki-127