Baldur Einarsson hefur verið ráðinn útgerðarstjóri Loðnuvinnslunnar og kemur til starfa með víðtæka reynslu úr sjávarútvegi. Hann er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað bæði til sjós og lands. Baldur starfaði síðast sem útgerðarstjóri Eskju á Eskifirði í sjö ár en lét af störfum þar á síðasta ári.
Baldur mun hefja störf fljótlega og vinna fyrst um sinn samhliða Kjartani Reynissyni fráfarandi útgerðarstjóra. Kjartan lætur af störfum í vor eftir farsælan starfsferil fyrir Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Loðnuvinnsluna og forvera hennar.
Samhliða þessum breytingum mun Steinþór Pétursson taka við hlutverki Kjartans sem fulltrúi Kaupfélagsstjóra og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Loðnuvinnslunnar. Starfsheiti Steinþórs verður breytt í fjármálastjóra, en hann mun áfram sinna skrifstofustjórn félagsins.
Loðnuvinnslan býður Baldur hjartanlega velkominn og þakkar Kjartani fyrir einstakt framlag hans til félagsins.